Velkomin á heimasíðu Kiwanisklúbbsins Setbergs
Starfsárið fer vel af stað
Á aðalfundi 27. apríl 2011
Á_döfinni
Laugardaginn 17. desember verður jólafundur SETBERGS haldinn í Kiwanishúsinu v/ Faxatún með hefðbundnu hangikjöti og tilheyrandi. Það verða félagarnir Guðmundur Þorvaldsson og Hafþór Árnason sem enn á ný munu sjóða hangikjötið og gera uppstúfið, svo ekki sé minnst á Ris-a-la-mande, möndlugrautinn góða, sem síst er talinn eftirbátur grjónagrautsins sem kenndur vars við Steingrím nokkurn Heramannsson. Fólk er hvatt til að koma og taka með sér gesti.
FRÁ FORSETA KIWANISKLÚBBSINS SETBERGS
Kiwanisklúbburinn Setberg - Stofnaður 9. júní 1975
Kennitala: 610983-1469
Netfang: setberg.kiwanis@gmail.com
Sími hjá formanni húsnefndar: 565 6109 / 895 6109

Fundartími: Annan hvern miðvikudag kl. 20:00
Fundarstaður: Kiwanishúsið v/ Faxatún 15b
Sími forseta: 565 6695 / 892 2184
Heimasíða: www.setberg.kiwanis.is
Á fyrsta alm. fundi starfsársins var ræðumaður Guðni Ágústsson fyrrum ráðherra. Næsti fundur var haldinn í Hafnarfirði en við heimsóttum þar Eldborgarfélaga. Ræðumaður þar var LIlja Mósedóttir alþm. Miðvikudaginn 30. nóv. héldum við okkar 666. fund og þá komu góðir gestir í hemsókn, þær Hjördís Harðardóttir, kjörumdæmisstjóri og Dröfn Sveinsdóttir kjör-kjörumdæmisstjóri og fræddu okkur um hvað væri á döfinni hjá umdæminu.
Kiwanisklúbburinn Setberg í Garðabæ er 35 ára. Á þessum tímamótum höfum við Setbergsfélagar gert okkur dagamun af ýmsu tagi. Auk hefðbundinna starfa í þágu samfélagsins höfum við haldið fundi í klúbbnum, farið í ferðalög innanlands og utan haldið skemmtanir fyrir okkur og ýmsa hópa, svo að eitthvað sé nefnt. Meðal verkefna okkar í þágu samfélagsins eru styrkveitingar okkar til verðugra verkefna í þágu þeirra sem minna mega sín, námskeiðahald um skyndihjálp, þorrablót fyrir aldraða og skemmtanir fyrir fatlaða. Einnig eru sérstaklega áhugaverð verkefni okkar í þágu barna en klúbburinn hefur gefið 6 ára börnum reiðhjólahjálma á vorin og veitt verðlaun til barna sem hafa staðið sig vel við útskrift úr grunnskólanum. Í lok ársins höfum við síðan gefið út afmælisblað klúbbsins. En það höfum við borið út í öll hús í Garðabæ, sent út í alla Kiwanisklúbba landsins, auk þess sem það liggur frammi í verslunum og þjónustufyrirtækjum sem fólk heimsækir. Netútgáfu blaðsins má nálgast hér.

Það er mjög gefandi fyrir okkur félagana að starfa saman að góðgerðarmálum en um leið að hittast og gera okkur glaðan dag. Við höfum ákveðið á nýju ári að gefa fleiri Garðbæingum og íbúum nágrannasveitarfélaga kost á að ganga í klúbbinn. Til að óska eftir aðild er nóg að senda okkur tölvupóst og munum við þá hafa samband við viðkomandi. Að starfa að góðgerðarmálum er mjög gefandi starf en þátttaka í starfi Kiwanis er einnig bæði gefandi og skemmtileg fyrir okkur sjálfa.

Við Setbergsfélagar eru stoltir af því að vera hluti af vaxandi hópi sjálfboðaliða í landinu. Ef marka má forsvarsmenn heilbrigðisþjónustunnar er það einmitt sá hópur sem samfélagið reiðir sig æ meira á við að endurnýja tæki og búnað á sjúkrahúsum, auk þess sem hópurinn gegni mikilvægu þjónustuhlutverki gagnvart þeim sem minna mega sín.

Þorvaldur Finnbjörnsson
fráfarandi forseti Kiwanisklúbbsins Setbergs í Garðabæ
Netútgáfa afmælisrits Setbergs
Kiwanisklúbburinn SETBERG heldur þorrablót fyrir eldri borgara í Garðabæ í 26. skipti miðvikudaginn 25. jan. 2012. Ath tími gæti breyst.
var kosin stjórn starfsársins 2011 - 2012:
Matthías G. Pétursson - forseti
Aage Petersen - kjörforseti
Guðmundur Þorvaldsson - varaforseti
Þorleifur Markússon - ritari
Sigurður Ingibergsson - féhirðir
Hafþór Árnason og Hallmann Óskarsson - meðstjórn.
Kiwanisklúbburinn SETBERG - Garðabæ
KIWANISKLÚBBURINN
SETBERG
GARÐABÆ
STOFNAÐUR 9. JÚNÍ 1975